A World Awaits...

24.07.2007 22:18:32 / gottmedi

Langþráð sumarfrí byrjað.... eða hvað?

Hæhæ allir.

 Nú er ég komin í sæluna. Það er svo gott að vera komin heim að ég get valla lýst því. Sumarfríið entist ekki svo lengi byrjaði að  vinna á fimmtudaginn hjá Óskari frænda og fæ loksins frí á morgun. Ætla bara að nota daginn í að slappa af og kannski að fá Gunnu til að hjálpa mér að sækja um í skólanum úti.

Ég er að pæla í að taka þátt í mýraboltanum á ísó um þarnæstu helgi ef stelpurnar hérna ætla þá að taka þátt.... er alltaf að bíða eftir að  þær fari að ákveða sig eða gera eitthvað í þessu.

 jæja ég nenni eiginlega ekki að skrifa meira (dettur bara ekki meira í hug í augnablikinu) :)

  I´m out.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 22:09:22 / gottmedi

Jæja Tívolíið komið í bæinn.....

Sælt veri fólkið....

Jájá ég veit... ég er geðveikt löt að blogga :)

Ég er alveg að komast í sumarfrí, bara næsta vika eftir og svo verður brunað vestur á næsta föstudag eftir vinnu. Hlakka geðveikt til að komast í sæluna. 8)

Annars er lítið að frétta... nóg að gera um helgina. Á föstudaginn fórum við aðeins heim til Elíasar og horfðum á eitthverja b-bíómynd sem er versta mynd sem gerð hefur verið... vorum ekki að fatta hana.

Á laugardaginn hittum við svo Brynjar og héngum aðeins með honum. Svo fórum við í mat til pabba og co. og fórum svo með Sindra, Atla og Dóró í tívolíið.... djöfull var það gaman. Ég veit ekki hvort öskraði hærra Dóró eða Sindri :haha:

Svo ákváðum við að hafa sma sleepover hjá gunnhildi og fá okkur í glas og spila playstation og slappa bara af...

 

jæja ég nenni ekki að skrifa meira ætla að fara horfa á dvd..... :

 

l8ter 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 18:18:05 / gottmedi

Á ég eða á ég ekki....

Jæja gott fólk...

Nú er ég loksins búin að fá bæklingin úr skólanum sem ég var að hugsa um að prufa út í Danmerku. Hann er á dönsku og ég skil ekki neitt... bara eitt og eitt orð en næ engu samhengi. Helga Vala og Anna stína voru í þessum skóla þegar ég var í ML og þeim fannst geðveikt gaman þess vegna ákvað ég að skoða hann og mér líst bara nokkuð vel á hann en núna þegar ég er búin að fá bæklingin er ég allt í einu farin að fá smá bakþanka. Ég meina hef ég eitthvað að gera í svona skóla? Er þessi skóli ekki of erfiður fyrir mig? 

Held að ég verði að bjalla í cooperinn og ath hvað álit ég fæ þar.

 

Annars er lítið að frétta af mér.

* Skellti mér á ÍSLAND-serbíu á fimmtudaginn. Var bara helvíti ánægð með mætinguna hjá fólki. Stelpurnar áttu þennan stuðning alveg 100% skilinn og þær sýndu það líka í þessum leik. Nú er bara að vona að karlaliðið fara að að skríða upp úr drullinni og fara standa sig betur.

* Er búin að vera hjálpa söllu að læra um helgina. Hún er einmitt í prófi núna. (Vona að það gangi vel)

 * Svo fór ég með krökkunum að sjá Brúðubílinn í dag.. og þau sátu alveg stjörf yfir honum. Mér fannst þetta bara mjög gaman. Fyndið að Helga sem var með stundina okkar þegar ég var lítill sé enn að þessu. :)

annars verður mikið að gera í vinnunni í þessari viku því við erum með sólstöðuhátíð á föstudaginn og það þarf að undirbúa margt fyrir það s.s. kenna krökkunum lögin sem þau eiga að syngja og búa til kórónur á allt liðið.

 

 bæó


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 18:47:41 / gottmedi

Áfram Ísland....

Jæja sælt veri fólkið. long time no see :)

Heyriði mér langar aðeins að ræða um fótbolta af því ég skellti mér á Laugardalsvöllinn á laugardaginn á ÍSLAND - frakkland og varð fyrir frekar miklum vonbrigðum en það voru alls ekki stelpurnar okkar í landsliðinu sem öllu þeim heldur mætingin á völlinn. Ég hálf skammaðist mín fyrir að vera Íslendingu og dauð vorkenndi landsliðinu okkar.... HVAR ER STUÐNINGURINN við stelpurnar?? :evil:

Karla landsliðið okkar er svona lala og tapar oftast eða gerir jafntefli og það eru samt alltaf fleiri sem fara á leiki með þeim heldur en stelpunum. Ég veit að núna hugsa einhverjir... já af því að karlaboltinn er skemmtilegri en það er bara rugl og ég þori að veðja að fólk fari örugglega í flestum tilvikum ánægðara heim af leikjum hjá stelpunum heldur en strákunum.

Málið er ekki flókið í mínum augum... Kvennalandsliðið okkar í fótbolta er bara miklu keppnishæfara við önnur kvennalandslið heldur en karlalandsliðið.8)

Svo er þetta með þessi launamál. Mér finnst að stelpurnar okkar (sem eru að standa sig) eigi að fá jafn mikið borgað og strákarnir sem er let´s face it ekki alveg að gera gott og eiginlega langt frá því.

Á fimmtudaginn eru stelpurnar okkar að keppa á móti Serbíu á Laugardalsvellinum kl. 20.00 og ég hvet alla til að mæta og styðja stelpurnar og sýna þeim hvað við erum stolt og ánægð með þær... Ef karlalandsliðið vinnur einn leik hérna heim eru því fleiri áhorfendur á vellinum næst þegar þeir spila. Hvernig væri að gera það fyrir stelpurnar.

Svo langar mig að benda á að karlalandsliðið okkar er örugglega í kringum 100 sæti á heimslistanum en stelpurnar í 21-22 sæti á þeirra lista og þær eru að sigra lið í topp 10... Er það eitthvað sem við eigum eftir að sjá strákana gera á næstunni. :S

En áður en ég hætti vil ég segja að ég hef alls ekkert á móti Strákunum okkar en afhverju ekki að sýna stelpunum eins mikinn áhuga og þeim og flykkjast á völlinn með þeim eins og við gerum þegar strákunum gengur vel. :D

 

Kv. Sólveig 

*ath höfundi er alveg sama um stafsetningavillur.... er mjög ómissandi og upptekin manneskja  og hef ekki tíma til að velta mér upp úr smávægilegum hlutum :haha:8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 00:23:13 / gottmedi

Fór í Tjaldó um helgina.

Jæja TEAM Mexico ákvað loksins að skella sér í smá ferðalag. En því miður komust ekki allir með að þessu sinni. Marta þurfti að vinna um helgina og Dillan ákvað að koma ekki með.  En það var sko óge gaman. Við vissum ekkert hvert við ætluðum og enduðum á tjaldsvæði rétt hjá Flúðum. Við kíktum á "rúntinn" á flúðum og fórum í sund og svona. Það var svo eitthvað svaka partý þarna á laugardagskvöldið hvítt stórt tjald með "hljómsveit". Það var svo gaman hjá okkur að við ákváðum að við yrðum að gera þetta aftur seinna í sumar. Ég stakk upp á að stelpurnar kæmu bara vestur á listasumarið. Þær voru alveg til í það, við sjáum til hvernig þetta verður. Eigum eftir að tala við hinar líka.

Einnig ákváðum við að skella okkur aftur til Mexico árið 2010. Þannig að það er eins gott að fara bara safna fyrir því :)

 

Salla systir og Guðrún vinkona hennar ætla að fara til Tyrklands í september í tvær vikur eða eitthvað þannig að nú er ég alveg orðin veik því mér langar svo að skreppa aðeins eitthvað líka í nokkra daga. Samt ekkert sem kemur mér á hausin. :S

Þannig að ef eitthverjum langar að skreppa eitthvað ódýrt út í haust endilega látið mig vita.... skoða öll tilboð:D

 

jæja er að pæla í að fara skella mér í háttinn. Það er mánudagur á morgun og þá eru allir krakkarnir kolvitlausir í skapinu þannig að það er eins gott að vera vel hvíldur.

 

l8er :) 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 16:04:15 / gottmedi

Hæ hæ

Hellúúú allir.

 

 Jæja þá er ég hætt að vinna hjá Kaffitár um helgar. Síðasta helgina var soldið stempin enda fáliðað á vöktunum (eins og svo aft áður) :S 

 

Hlakka geðveikt til næstu helgar... Annað hvort fer ég með Team Mexico í bústaðaferð (veit samt ekki hvort við förum því Inga er að vinna og Dilla er í N.Y og við vitum ekki alveg hvort hún verður komin heim en það kemur í ljós) eða þá að ég fari í Afmælis/kveðjupartý hjá Regínu í vinnunni því hún á eins og gefur að kynna afmæli og svo er hún að flytja aftur út til DK í næsta mánuði. 

 

Ég ákvað að eyða smá pening í gær og keypti mér nýjan DVD-spilara. Hinn var orðin svo leiðinlegur. Svo vantaði mig fjölkerfa DVD spilar svo ég gæti horft á Eddie Izzard myndirnar mínar.

 

Annars hef ég ekki mikið að segja. Er eiginlega að blogga til að blogga bara :)

 

Er farin að horfa á nýja Dvd spilaran minn :) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 19:19:11 / gottmedi

Þessi litlu dýr stækka svo fljótt.

Næst síðsta vinnuhelgin mín loksins búin. Vonandi verð ég á stuttum vöktum síðustu helgina sem ég er að vinna.

 Ég var í fríi á fimmtudaginn (eins og flest allir) þannig að við æptluðum sko að gera eitthvað skemmtilegt. Salla fór út að borða með stelpunum úr vinnunni og ég fór með Hauki og Begga jr. heim til Elíasar og eins og venjulega endaði ég sem driver :) Var svo frábærlega heppin að fá að fara með Hauki að sækja Magga á eitthverja vinnuskemmtun.... og hann var sko fullur. Hann var svo fullur að hann lét plata sig í að singja dúett með einhverri stelpu og vitiði hvaða lag þau sungu? MY HEART WILL GO ON - TITANIC!!! Það kallar maður að vera fullur. Við fórum líka með Magga og Begga í bíó á fimmtudaginn á THE RIPING - rosalega var hún ekki eins góð og ég hélt að hún yrði. Ég veit ekki alveg hvað við héldum að við værum að fara sjá.

Á föstudaginn var starfsdagur í vinnunni og í tilefni af því skrapp starfsfólkið upp norðlingaholt að skoða glænýjan leikskóla og svo fórum við á Hvanneyri að skoða leikskólan þar en fyrst var stoppað í Borgarnesi og borðað hádegismat á Landnámssetrinu og eftir mat fengum við að skoða sýningu Egils Skallagrímssonar... ég verð að viðurkenna að mér fannst það bara gaman.

 Annars er lítið búið að ske. Elma og Hafdís eru í bænum en ég er ekkert búin að hitta þær enn. Hitti þær örugglega þegar Eðvarð kemur í land.

Svo er Ívar (stjúpi pabba) soldið mikið veikur og búinn að vera það í nokkrar vikur. Við erum búnar að kíkja tvisvar á hann síðan hann var fór á sjúkrahúsið. Fyrsta skiptið var hann í dásvefni. Hann er vakandi núna þannig að við kíktum á hann með pabba og co. Það var soldið erfitt að horfa á hann með allt þetta dót á sér. Vonandi láta þau þarna upp á spítala fara vel um hann.

 

jæja ég ætla að fara horfa á top gear.

Sjáumst Sollann.

Já hey ég gleymdi einu: Ég litaði hárið á Dillu á föstudaginn og það datt ekki af - bravó fyrir mér :)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 16:41:49 / gottmedi

Jæja, hvað er að frétta af fólki?

Ég og Salla skelltum okkur til Hveragerðis á föstudaginn til að heimssækja Helgu Völu. Það var mjög skemmtilegt. Fórum á ball og lentum í leiðindum við einhverja fulla stelpu sem réðast að okkur. Það var samt eiginlega soldið skemmtilegt (mitt álit). Eftir ballið og lætin fórum við nokkrar með leigubíl á Selfoss þar sem við hittum aftur þetta stelpu grey og Helga Vala ætlað að drepa hana  held ég. Hún var sko alveg í stuði fyrir svona derring.

Á Laugardaginn skelltum við okkur aftur í bæinn til að kjósa og svoleiðis rugl svo skutlaði salla mér í Hveragerði og hún kíkti í partý á Selfoss hjá Ágústi. Það var sko geggjað gaman hjá mér og Helgu, við fórum í bónus og keyptum helling af drasli til að geta grillað svo skelltum við okkur upp á tjaldsvæði í hveró (sem er notabene við hliðina á húsinu hennar Helgu) og grilluðum alveg svaka góðan mat á svona ódýru einnota grilli. (það gekk allt nema að grilla kartöflurnar) ;)

Svo vorum við soldið hressar af drykkjarföngunum sem við vorum með og við vorum eitthvað að spá í hvernig við gætum fengið far til Önnu og Díönu þannig að Helga hringdi í Önnu og sagði henni að ég væri dauð og hún yrði að koma - og auðvitað kom þessi elska á spittinu (takk anna :*) og við fórum svo heim til hennar.

Þetta var bara mjög góð helgi - verðum að gera þetta aftur við tækifæri. 

 

Annars er lítið annað búið að gerast.

Eðvarð var að koma í land í morgun en svo ákvað hann að skella sér vestur og koma aftur á morgun held ég. Þannig að ég náði ekki að hitta hann neitt. Sé hann kannski á morgun áður en hann fer á sjó aftur.

Við erum komnar með húsdýr sem ætlar að fá að búa hjá okkur um tíma :)

kv. sollan

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 18:05:17 / gottmedi

Gott að helgin er búin!

Því það þýðir að ég á FRÍ um næstu helgi. Og ég ætla að gera eitthvað skemmtilegt.

Annars er nóg að gera þar til þá. Leikskólinn sem ég vinn á á afmæli á föstudaginn og það verður opið hús, grillveisla og svoleiðis skemmtilegt, þannig að það er búið að vera alveg hellings nóg að gera. Krakkarnir á deildinni okkar eru búnir að vera í listaverkaframleiðslu síðan í síðustu viku. Þannig að dagarnir hafa að mestu farið í það ásamt því sem við notum alltaf tækifærið til að henda þeim út í freska loftið á milli listaverka :D

Svo þarf ég örugglega að fá frí á fimmtudaginn hjæa birtingi því við stelpurnar vorum að pæla í að hittast um kvöldið á deildinni okkar og gera hana hreina og fína fyrir afmælið.

 

En talandi um vinnu þá er ég búin að segja upp helgarvinnunni á Kaffitár og síðasti vinnudagurinn minn þar er 3. júní. Ég ákvað að ég ætlaði ekki að vinna svona mikið í sumar eins og ég er búin að gera og kannki byrja að eiga mér eitthvað líf ekki bara vinna endalaust. ég ætlaði líka að hætta hjá birtingi en ég er að hugsa um að halda áfram þar til að fá smá auka pening. 

 

Sé til hvernig sumarið verður :)

 

Ég nenni ekki að blogga meira ætla að fara horfa á gamanefni í imbanum

 

C-yas 


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 18:22:58 / gottmedi

Til hamingju með Afmælið Afi :D

 

Jæja hvað er að frétta?

 

Það er ekki mikið að frétta af mér.... er búin að vera hálf veik seinustu viku. En hún er samt búin að vera mjög skemmtileg.

Ingi kom á fimmtudaginn og föstudaginn í heimsókn með Ívari vini sínum og við spiluðum buzz... (það er eiginlega orðin hefð á þessu heimili) og þeir töpuðu fyrir... MÉR!! Valdi vinur söllu skrapp líka í bæinn og kíkti á okkur á föstudaginn. Maggi og Haukur kíktu líka held að það hafi aldrei verið svona margir í íbúðinni í einu áður :)

 

Á Laugardaginn keyrði ég mömmu til vinkonu sinnar og svo fórum við Salla í afmæli hjá Gunnhildi og það var nú meira en lítið skemmtilegt.... Krakkarnar splæstu í strippara fyrir hana ;) Verð að viðurkenna að þessi strippari var útlitslega ekkert spes. En svo skelltum við okkur á Hressó með liðinu úr afmælinu svo ætluðum við að fara með þeim á Sólon en hættum við því við hittum Valda, Hauk, Karen, Ninnu og Jón Orra og ákváðum að vera hjá þeim svo var Salla aðein búin að fá sér í aðra tánna og hringdi í Óla sem hún sá örugglega síðast fyrir meira en ári og sagði honum að drattast niðrí bæ að djamma með okkur. Ég verð að bæta því við hérna að Sölvi og Maggi komust ekki inn á Hressó því þeir voru í hettupeysum en það er greinilega orðið eitthvað issjú HAHAHA!!! Annars enduðum við (ég, óli og salla) í eitthverju spjalli á bensínstöð að éta pylsur í morgunsárið. Þetta var bara rosalega skemmtileg helgi þó ég hafi bara verið edrú að keyra.

 

Eðvarð var að fara vestur í dag... báturinn bilaði þannig að þeir fara ekki út fyrr en á föstudaginn. Hann var svo heppinn að þurfa koma með okkur að versla gardínur og þ.h. spennandi hluti :D

 

en ég verð víst að fara hætta erum að fara hjálpa mömmu að sauma og setja upp gardínur...

 

hafið það gott 


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 17:58:06 / gottmedi

Sorry hvað ég er búin að vera löt að blogga.....

En ég er bara búin að vera geðveikt löt og líka upptekin þegar égar ég er ekki að vinna. En það skánar vonandi á næstunni því ég ætla að hætta í 2 af 3 vinnunum mínum í sumar allavega. En mig langar ekki að vera vinna um helgar og til 22 á kvöldin í allt sumar.

 

Annars er ég nú ekki búin að gera mikið um helgina.... því það var vinnuhelgi. Við systkinin skelltum okkur í bíó á föstudaginn á Mr. Bean myndina.

Salla fór út í gær en ég var svo löt að ég leigði bara spólu með Edda. Jackass 2 hún var bara mjög góð :) en ég er alveg viss um að ég hafi kúaðst miklu meira yfir þessari en fyrstu myndinni. Kannski gerir maður eitthvað skemmtilegt um næstu helgi.

 

Valgeir var að koma í bæinn í dag með harða svefnsófan sem hann og mamma ætla að lána okkur..... þannig að nú getum við farið að færa sjónvarpið úr herberginu hennar söllu og alla leið inn í stofuna.

 

Ég veit að þetta er frekar stutt og ómerkilegt en ég var að koma úr vinnunni og ég er geðveikt þreytt af því að við vorum bara 3 að vinna í dag og það var alveg fullt að gera... ætla henda mér í sturtu og svo klessast bara fyrir framan DVDtækið.

 

ó.. já GLEÐILEGT SUMAR ALLIR!!! 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 21:12:27 / gottmedi

Páskarnir Á Enda....

Nú er fríið víst búið í bili.

 

Við vorum að koma að vestan í dag, er búin að vera þar síðan á fimmtudaginn í síðustu viku. Þetta var alveg það sem vantaði.... að komast aðeins heim.  Maggi kom með okkur vestur og gisti hjá okkur. Við fórum í smá innflutnings partý hjá Alla en hann var að flytja í íbúð á ísó og við vorum þar eitthvað fram eftir kvöldi. Svo fórum við á aldrei fór ég suður á föstudaginn svo fórum við öll í sitthvora áttina um kvöldið... Maggi var með Sölva á Ísó, Salla fór með vinkonum sínum á ball í Hnífsdal og ég fór með fullt af liði á ball heima og það var bara geggjað gaman svo endaði þetta allt í smá partý heima hjá mömmu og Valgeiri.

Við gerðum mest lítið á laugardaginn, við vorum öll frekar þunn og svo var ég líka hálf veik komin með kveif og leiðindi. Á sunnudaginn fórum við bara að spila buzz hjá Evu og Danna og ég vann í sport leiknum... geðveikt ánægð með mig :)

 

Við fórum svo í gær til Elmu með Buzz. Ætluðum að leyfa henni að prufa og hún var alveg mögnuð í þessu... hún bustaði okkur í fyrsta leik. 

 

heyrðu ég ætla að hætta því mér er orðið svo kalt á tásunum... ætla skríða undir sæng.

 

bæósssss 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 19:51:36 / gottmedi

Tveir dagar í að ég komist vestur.

 

Hæhæ allir.

 

Mikið rosalega var gaman um helgina. Við skruppum aðeins út að hitta Gunna og Palla á föstudaginn með Esther eyja skvísu og Guðgeiri (kærasta eða ekki kærasta hennar) :) og enduðum á eitthverju pöbbarölti. Hitti meðal annars Oddný (Team Mexico)  svo hittum við Magga líka á röltinu og þá kom í ljós að Valdi og Haukur voru á staðnum sem við vorum á leiðinni á þannig að við hittum þá þar... ef ég man rétt þá héld ég að ég, Gunna og Valdi höfum farið að dansa saman... og það verður að segjast að Valdimar er með mjög sérstaka takta haha ég get ekki verið alvarleg þegar ég sé hann dansa  en ég ætla ekki að segja neitt um Gunna því ég held að þetta hafi verið í fyrsta skipti sem ég sé hann dansa.

 

Annars erum við systurnar að fara vestur á fimmtudaginn... ætluðum að fara eftir vinnu á miðvikudagin en hættum við. Ætlum bara að horfa á meistaradeildina og slappa af. Maggi og Haukur ætla með okkur vestur og svo fær Arnar frændi hans Alla far með okkur.

 

Mamma og Valgeir koma í bæinn á morgun... svo liggur leiðinn til Keflavíkur upp í flugvél og til Danaveldis. 

 

jæja Mér er illt í hnéinu og það leiðir svona líka svakalega upp í hendur ;D þannig að ég ætla að fara hætta.

 

Blogga örugglega aftur áður en ég fer vestur. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 18:41:09 / gottmedi

pakka saman drasli pakka saman drasli

Eins og þið getið glögglega séð hérna fyrir ofan er ég að pakka niður dóti í eigu manns sem ég læt ógert að nefna. Get ekki beðið eftir að losna við allt þetta junk úr íbúðinni og þurfa ekki að sjá hann aftur á næstunni:)

 Hann er svo ömurlegur við Söllu að mig langar mest að...... aaggghhh hann er búin að gera mig svo þokkalega fúla. En ég ætla að líta á björtuhliðaranar á þessu máli, sú helsta verandi það að þurfa vonandi aldrei að sjá hann aftur. :)

 

En annars er lítið að frétta, þarf að standa í þessu veseni á morgun og vinna á sunnudaginn. jippý jeyj!!! can´t wait.

 

Ég var líka að fatta í ''tiltektinni'' að ég sá ekki hrærvélina mín né matvinnsluvélin mína. Hef pott þétt gleymt að taka hana hjá Óskari.  Hlýtur vera þar því ég held að ég hafi alltaf átt eftir að taka hana hjá honum. 

Verð að fá það aftur... þetta voru jólagjafir!!!!

 

annars ætla ég að halda áfram að ''taka til'', reyndar er ég farin að líta á þetta sem vorhreingerningu.... :D hehehe

 

jæja see u later. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 19:29:50 / gottmedi

jæja....

 

Heyrðu bara nóg að gera.... Ég og Salla skelltum okkur í innflutningspartý hjá Deni (frönskum gæja sem vinnur með Söllu) það var bara rosagaman.

 

Við erum búnar að þurfa versla aðeins í dag. Keyptum nýjan rounder fyrir tölvurnar hjá okkur og þráðlausan heimasíma, svo skutluðumst við til Afa og Ömmu í hafn. til að skoða rúm sem afi ætlar að láta söllu fá en Stebbi geðprúði eins og við köllum hann þessa dagana kom um daginn og tók sjónvarpið og rúmið svo kom hann aftur í gær í sínu góða skapi og tók rounderinn og heimasíman. Hann fór meiri segja inn í ísskáp og tók út vantskönnuna, hellti úr henni vatninu og hennti henni svo í poka hehe... hann er svo sérstaklega sorglegur stundum :D

 

En annars erum við að fara skella okkur út í kvöld með Dillu og nokkrum öðrum. Við ætlum bara að fá okkur að borða snemma og fara svo heim til Dillu þegar við erum búnar að græja okkur. 

 

jæja ég ætla að halda áfram að taka til svo við komum rúminu inn á morgun.... það er allt draslið hans stebba geðprúða útum allt.

 

blessó 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagsetning
9. febrúar 2012
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
TEAM Mexico
RSS tengill